Jæja hér koma upplýsingarnar um hvar og hvenær og það allt saman...
Reunionið hefst á því að hittast í
pizzuhlaðborð á Greifanum kl. 13:00 til að smala hópnum saman. Það kostar 1.300.- kr á mann fyrir utan drykki.
Síðan er smá skipulögð dagskrá hjá okkur til ca. 20-21. Eftir það er kvöldið opið fyrir að slútta þessu með stæl ef stemningin er góð!
Þar sem það spáir svo góðu veðri á Akureyris um helgina ætlum við að vera aðeins úti við svo stelpur, ég mæli með að mæta ekki eingöngu á pinnahælunum

Það er annars engin þörf á sérstökum útbúnaði, klettaklifrið, raftingið og sandspyrnan verður næst þegar við verðum orðin aðeins eldri og þroskaðri til að fara okkur ekki að voða

Annar kostnaður sem við ætlum að hirða af ykkur er 1.700.- svo hafið
amk. 3.000.- kr í þáttökukostnað. Við sjáum öllum fyrir snarli/kvöldmat þarna seinni part dags svo enginn svelti.
Þá held ég að ég sé ekki að gleyma neinu sem ég átti að setja hérna inn varðandi þetta...
Nefni kannski líka að þeir sem vilja geta að sjálfsögðu gripið með sér gamlar myndir, gítar og söngbækur, getto blaster eða what ever til að rífa upp stemninguna...
Þessa hérna töldum við með í planinu en vonumst að sjálfsögðu bara til að sjá sem flest af okkur!
Auðrún
Ásta
Björg
Bóas
Davíð
Dýri
Eiður
Hallgrímur
Kristján
Ómar
Ragnar
Rósa
Skjöldur
Svana
Svava
Tómas
Viðar
Þetta gera 17 manns sem er 68% mæting af bekknum, það hlýtur að teljast gott

SJÁUMST!!